sunnudagur, mars 19, 2006

Gleði fréttir

Helduru að kallinn sé ekki búinn að redda sér vinnu á RÚV!!! Tók mig til og samdi ferilskrá og umsókn í fyrraviku og sendi inn á fimmtudeginum. Kallaður í viðtal á miðvikudaginn, ráðinn á laugardaginn (í gær) og byrja á morgun!!! Gerist ekki fljótara.
Núna er ég svo spenntur að ég veit ekki í hvorn fótinn ég á að stíga. Fyrsti mánuðurinn fer í starfsþjálfun og svo á ég að fara á svokallaða Rás 1 vakt. Verð sennilega að vinna mikið í útvarpi ;)

Im working for the MAN....

föstudagur, mars 17, 2006

Þótt fyrr hefði nú verið

Frábært hjá ykkur Halli og Jói. Þetta er málið!!!
Reiðin er runninn af mér. Ég get verið siðmenntaður og sanngjarn þessa stundina en fyrir svona 2 klukkutímum síðan vildi ég berja mann og annann (hehe. ekki samt í alvörunni). En þannig er mál með vexti að Halli Valli og Jói paddies héldu í fyrsta skiptið Pub Quiz í kvöld. Þvílík skemmtun!! Ég og Haffi vorum saman í liði en Smári átti að vera með okkur en komst ekki (pussy!!:). Við vorum liðið "The Blues Brothers" og við fengum svona 17 stig en efsta 23 (ég uppgötvaði nýja hlið á mér í kvöld; ég er rosalega tapsár). Liðið við hliðina á okkur vann allt og mér langaði að lemja þá (sérstaklega einn af þeim, nefni enginn nöfn:). En þeir báru sigur úr býtum þeir í "Men in tights". Unnu kassa af bjór, kampavínsflösku og fleira. Til hamingju með það..... The blues brothers eru samt miklu betri. Það lág bara illa á þeim í kvöld.
Staðreind dagsins. Tommygun er eitt af bestu íslensky rokk böndunum í dag á klakanum. Tókum upp demo í kvöld til að leggja loka hönd á lagasmíðarnar. En við erum að fara spila á morgun(17. mars) á traffic á lagakeppni í boði Splash drengjanna. Allur ágóði rennur til þriggja langveikra barna hér í Keflavík. Frábært að geta tekið þátt í þessu og styrkja von um heilbrigða framtíð þessa barna. Við rokkum fyrir þau!!!!!