laugardagur, apríl 01, 2006

The man treats the main man well

Nú hef ég verið starfsmaður hjá RÚV í tvær vikur og mér lýst mjög vel á þetta allt. Ég er ennþá í starfsþjálfun þannig að það er alltaf einhver með mér að leiðbeina mér. Í kring um páskaleytið verð ég orðinn einn á báti ;) Það sem ég verð að gera er að taka upp útvarpsþætti fyrir rás 1 og stjórna útsendingu á rás 1. Svo fer ég seinna í fréttaútsendingu á samtengdum rásum eitt og tvö.
Ég er núna í vinnunni og það er laugardagur. Vaknaði klukkan 5 í morgun. Þetta hefur ekki gerst í mörg ár.

luv & peace :)

Tjekkið á þessu lagi. Þetta er íslenskt band. Með því flottara sem ég hef heyrt:
Black Valentine - The Curse

5 Comments:

At 11:12 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

ég get með engu móti lýst því hvursu stoltur ég er af þér brósi hehe

 
At 12:38 e.h., Blogger Óli Þór said...

Það er gott að vakna snemma, þegar maður hefur kraftinn í það :)
Til hamingju með nýtt jobb á nýjum stað - frábært að geta unnið við það sem maður kann bæði og elskar!

Kv.
Óli Þór

 
At 8:38 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

damn, ég er að fýla þetta lag, sumarið kemur með því

 
At 6:05 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

vá frábært ingi. er ekki alveg að digga þetta lag. er þetta djók eða...?

 
At 2:16 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Til lukku með nýju vinnuna;) bara að kvitta.. Kvitt, kvitt;)
Anna Þóra úr LK

 

Skrifa ummæli

<< Home