sunnudagur, febrúar 05, 2006

Típískur sunnudagur

Glösin eru tvö
ef ekki sex eða sjö
Leifar af pizzu
á stafla af diskum
flöskur þar sem eitt sinn
bjórinn flæddi í
mylsnur í sófa
sem eitt sinn ég snæddi í
já það er margt af því í kringum mig
sem ætti ekki að vera
best ég lagi til!!

Everything has its beauty but not everyone sees it. Confucius

Lag dagsins: The Impossible Five - Zero Zero

9 Comments:

At 11:07 e.h., Blogger Ingi �� said...

Þar mælirðu sönn orð Kafteinn. Allt það sem fyrir augum mér bar í dag er ennþá sínum stað, það sama má segja um mig sjálfann. Nú er komið að þessu

 
At 6:36 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Bwahahahaha :)Ekta þú eitthvað

 
At 5:51 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

O já það er ekkert varið í sunnudagana nema mar sé allveg grútþunnur.

 
At 12:24 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Það efast ég um, að þú hafir gert
handtak um helgina Ingi.
Það myndi kallast hreint kraftaverk
ef þú hefur ekki bara hlaupið í hringi.

Pabbi þinn myndi þig eflaust skamma
ef hann sæi ruslið í haugum.
en þú áttir ráð, og sagðir elsku mamma
hjálpaðu mér, annars gengur lubbi´af mér dauðum

Kveðja Hlynur Þór

 
At 2:27 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Er klukkan nálgaðist ellefu
fór þá eitthvað að gerjast
Múttan heim úr vinnu kom
og bauð mér góða kvöldið
Ekkert minntist hún á það
sem fyrir sjónum hennar bar
En samviskan var orðin gruggug
líkt og sveppasíktur djús
Gaf ég inn og drattaðist
úr sófanum í lífið
Raunveruleikinn mér blasti við
upp ég fór í hollum

Á meðan hugsaði pabbinn með sér:
"slæmur er hann drengurinn,
en efni hef ég ekki á því
að lasta drenginn þann
því ber hann þau sömu erfðargen
er lýsa sóðaskap."

 
At 11:41 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Snilld :) hahaha

 
At 11:48 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Til ER sjálfUnnin Sykursýki
Ég sver að það er satt og Rétt
En vona Þó ég engan Svíkji
Þó sanleikann Ég haldi í þétt
Það Aldrei hefur Hugnast mér
sú Arfa þvæla Og vitleysa
Að í mér leynast sóðagen
hugarburður og þarfleysa
argasta vitleysa
sei sei Og svei

 
At 2:18 f.h., Blogger Ingi �� said...

Hvurslans hvurslans gamli kall
afneitun og vitleysa!
minnið bregst þér nú til dags
annað en í gamla daga

man ég sögur þær um bakvið sófa,
undir rúmm og oní bala.
Sama tíðkast nú til dags
hjá son í blóð og hár.

þótt að úr þér hefur ræst
eru genin enn til staðar,
djúpt í rótum litningsins
einn af fjörtjogsex

Fyrr eða síðar
mun hann vakna.....

 
At 9:44 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Friður friður friður
sé með yður
nú kveð ég kveð ég kveð ég
þetta niður
því komist komist komist
hef ég að
að sóðinn sóðinn sóðinn
á sér stað
í norður norður norður
himna horni
hann sáir sáir sáir
sannleiks korni
og sópar sópar sópar
upp í fötu
og sáldrar sáldrar sáldrar
yfir götu
mannlífsins, hér á jörðu niðri

 

Skrifa ummæli

<< Home