þriðjudagur, desember 20, 2005

Íslenskaður!!

Jæja. Nú hef ég tekið þá ákvörðun að spara djævið fyrir sérstök tilefni. Nú er það einungis íslenskan sem blívar á stafsæna jóa, svo þarf ég líka æfinguna vegna þeim aragrúa af ritgerðum sem þurfa að lýta dagsins ljós á næstu önn. Já vel á minnst, ég tók 7 próf fyrir jól og hampaði 15 einingum (reiknið sjálf). Nú er ég kominn með 116 einingar allt í allt og þarf þá 24 í viðbót til að öðlast inngöngu í háskóla og gleðina af því að bera svartann og hvítann hatt á höfðinu. Þannig að næsta önn verður nokkuð strembin, ef allt gengur upp verð ég stúdent í maí!!! Alheimsorkan verður að vera mér í hag. Ég ætla að slaka á í stúdíóinu og helst ekki að taka upp 2 plötur á meðan á skólanum stendur!! Maður er alltaf að læra eitthvað nýtt. Talandi um stúdíóið þá voru Ælu-liðar að ljúka við upptökur á sinni fyrstu breiðskífu fyrir stuttu og einnig Fríða og Finnbjörn í Tabula Rasa. Frábærir talentar hér á ferðinni. Var frábært að vinna með þeim öllum og ég óska þeim til lukku með "barnið" sitt.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili. Núna ætla ég að byrja að mála DÖKKA herbergið mitt LJÓST.

Friður úti (jebb, allt komið á íslensku)

2 Comments:

At 3:49 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Jebb allt spurning um að skipuleggja sig smá, eina sem þarf, svo bara kaffi og jákvæðni..... eða Jack í kók og slagsmál til að losa um streituna.

 
At 9:47 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Bloody marvelous ol nigga you´ll be a preacher one day I say dats ok hey hey
lil ol rudolf

 

Skrifa ummæli

<< Home