Alvaran tekin við á nýju ári
Gleðilegt nýtt ár!! 2006 komið. Mér finnst eins og það hafi verið aldamót fyrir tveimur árum :) svona er nú brenglaða tímaskynið mitt.
Nú er ég byrjaður í skólanum og þetta verður hörku törn hjá mér. Ég ætla mér að útskrifast í maí með stúdentspróf á félagsfræðibraut. Ég verð í 8 áföngum, þannig að ég á örugglega eftir að sjást lítið á fyrri helming þessa árs.
Ég verð að segja ykkur sem lesið frá einni hljómsveit sem ég er ekki búinn að geta hætt að hlusta á. Þetta er band frá Toronto í Kanada (heimabær þeirra Danna Jones og Petru Pushkin) og eru þau eitthvað um eða yfir 10 manns. Þau heita "Broken Social Scene". Tjekkiði á þeim og þið verðið ekki fyrir vonbrigðum. Mæli með þessari plötu: You forgot it in people.
adios

1 Comments:
Þetta er e-ð svona god speed. Gangi þér vel
i skólanum dúudi en þú getur fengið hjá mér verkefi. Búin að taka alla áfangana í fél.
Skrifa ummæli
<< Home