föstudagur, apríl 11, 2003

Ég hef verk að vinna dag skal ég segja ykkur!!!

Eins og þið vitið þá er Erla að koma í kveld, oggggg, herbergið mitt er eins og svínastíja. Ég þarf að taka allt í gegn. Ég og Steve (bekkjarfélagi minn, býr á 6. hæðinni, ég er á 8.) vorum að taka því rólega í herberginu mínu í gærkvöldi. Allt í lagi með það... En svo allt í einu fékk þessa flugu í hausinn að flegja mér í rúmmið einhvernveginn. Og svo er ég var á niðurleið í loftinu, var þriggja hæða hillan mín fyrir mér!!!! %^´+**&%#"#####
Ég svoleiis skallaði hausnum í neðstu hilluna þannig að hún losnaði af veggnum og allt fór út um allt. Er ég öskraði af kvölum, stökk Steve upp úr stólnum "Fuckin ell, the bloody beer!!" og greip hálffulla bjórdós af rúmminu mínu.
Jebb, ég neyddist til að sofa, bókstaflega, í bjór. Ég lyktaði eins og bjór og nefið á mér gat ekki skilgreint neina aðra lykt, nema bjór. Ekki einu sinni Yankee smellið!!
En ég sætti mig við þetta og brosti í gegn um tárin. Þannig....... ég get ekki boðið neinum kvenmanni upp á svínastíju og bjórfnik. Nei nei, það er komið að Mr. propper og Mr. Muscle að gera innrás í stíjuna. (ég er mr. propper og mr. muscle er ýmindaði vinur minn, a.k.a M.B, a.k.a Milhouse Birmingham)

Ég fékk ansi uppliftandi sms í nótt frá "Sigga langatöng Plexmeistara Spliffason". Ég Kvóta: Megaplexið er alveg að meikaða. Brjalaðir t-leikar í gær . Troðfullt. Besta rokkband
á landinu. Vantar bara thig... megaplexikon. heilsaðu frá mér. Langatöng"
God Dang!!! Ég er farinn að hugsa með mér að það hafi verið mistök að fara út í námið svona fljótt. Hefði betur átt að fara í september!!!

En frábært, svo las ég frá Guggu að Hafþór hefði verið aðal Ælan. Hafði Ælt á trommurnar eins og honum er einum lagið!!!!! Go Smafffff, ég er stoltur af þér. (mamma, nenniru að prenta út aftur fyrir Hafþór svo hann geti verið með?? Takk elskan mín)





Skilaboð til Ælu-liða og Plex-liða:

Ok. Ég er fastur á Englandi í EITT OG HÁLFT ÁR!!! Núna er allt að ganga ljómandi hjá ykkur heima. En er 1 og 1/2 ár iggi soldið langur tími. Ég held að loksins þegar ég get verið með, verða allir farnir sínar leiðir. Og þegar ég hugsa um þetta, finn ég fyrir eimd. En kannski er það bara öfundsýki. EKKI GLEYMA MÉR

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home