þriðjudagur, apríl 01, 2003

Sæl veriði öll sömul!!
Ég upplifði dramatískan, þunglyndan, eimdar og þöglan dag í gær. Ég gat varla talað um kvöldið ég var svo eiðilagður. Ég gerði eitthvað sem ég hef alltaf lofað sjálfum mér að gera aldrei, aldreiii. En samt sem áður, þá gerði ég það. Það má segja að það hafi verið hópþrýstingur, en það er bara sjálfsblekking. Auðvitað tek ég mínar eigin ákvarðanir sjálfur. Þetta var svo mikið SJOKK fyrir mig að ég átti erfitt með að hugsa. Svo átti ég erfitt með að sofa. Lá andvaka til 6 um morguninn og svaf svo yfir mig um 3 klukkutíma. Núna eruð þið, mínir kæru vinir, að velta fyrir ykkur hvað í ósköpunum ég gerði af mér. Það er erfitt fyrir mig að segja, því ég fór til spákonu!!!!! Jebb, tarrot spádruslu, sem bókstaflega gerði mér lífið leitt. Áður en ég gekk inn í kompuna var Ingi littli (sem talar á ensku) að æpa á mig innanfrá:

"What the fuck are you doing!!!!!!"
"Dont do it, you will regret ittttt nóóóóóóóóóó"

Og ég svo sannarlega sá eftir því. Miðað við það sem kellan sagði, gæti ég bara skellt mér á næsta götuhorn og farið að betla aura.
En samt á sama tíma og ég sá eftir þessu, var eins og ég hafi fyllst af ást og umhyggju. Mér leið eins og ég væri annar en ég sjálfur. Það leit allt út öðruvísi en vanalega. Fólkið var öðruvísi, andrúmsloftið var öðruvísi. Allt var öðruvísi.

Ég á aldrei eftir að gleyma þessum degi. Aldrei!!
Ég verð að blibba aftur á morgun eða hinn. Ég verða bara að jafna mig á þessu.

Pís

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home