Jo Jo Ding DONGGGGGGG!!!!!
Ég er alveg búinn að jafna mig á þessum leiðindar degi. Hann endaði samt soldið vel. Um klukkan 2 um nóttina, er ég lá andvaka í skókassanum mínum, byrjaði Simens síminn minn að hringja á fullu. Það var Jo á hinum endanum á símaleiðslunni með mjög mjög mjög góðar fréttir fyrir mig. Ég var kannski ekki búinn að segja ykkur að ég er búinn að vera leita af plássi í húsi, því ég er ekkert sérstaklega ánægður með skókassann og eldhúsið sem er ekki með eldhúsborði. En allavega, þá eru Jo og Rick, Dave nr.2, Dave nr.3, Chloe og einhverjir 2 aðrir sem ég hef ekki enn hitt, að fara leigja hús frá 1.jul til 1.jul 2004. En mínir kæru vinir, góðu fréttirnar eru þær að Dave nr.3 hætti við og ég fékk að fara í hans stað.
Vá, ég fór í gær að skoða pleisið. Hólí sjitt!!!! 3ja hæða, 7 svefnherbergi, risa eldhús(með eldhúsborði!!), 2 baðherbergi, risa stofa(með sófa setti), broadband Internet tenging, okkar eigin bakgarður(þar sem við ætlum að halda bar-b-q veislur og tónleika og svo síðast en ekki sís: ýkt skemmtileg fólk!!!!!
Leigan er meira að segja minni en ég er að borga fyrir skókassann. Ég borga 60 pund á viku núna. En í húsinu borga ég 40 pund á viku. S.s 180 pund á mánuði. 20 og eitthvað þúsund kall !!!!
Næstkomandi fimmtudag fer ég á tónleika með The Rapture. Þið kannist kannski við þá´????
Ég verða að drull mér þeð er verið að loka sjoppunni!!!!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home