Váááá!!!!
Ég er ekki búinn að blibbba síðan einhverntímann í mars!! Tími til kominn
Það er svooo mikið búið að gerast að ég bara meika ekki að skrifa um allt. En ég meika allavega að skrifa um það helsta og besta.
Ég Sveinn, Danni, Sophie og Jo keyrðum uppettir í heimabæinn hennar Jo, Buckingham á fimmtudeginum fyrsta apríl. Mamma hennar og pabbi tóku á móti okkur með funheitum pitsum í tilefni dagsins, Sveinn átti ammæli!!! Til hamingju með daginn aftur drengur!! Um kvöldið skelltum við okkur niðrá The Junction sem er einn af pöbbunum í bænum. Fengum okkur bjór, spiluðum nokkra pool leiki og sungum all that she wants is another baby í karokí sem var alveg hilaríus!!! Allir á pöbbinum voru bara WHAT hverjir eru þessir síðhærðu hippar og hvað eru þeir að gera inná pöbbinum okkar. En það var einn gaur að fíla okkur í tætlur. Klappaði fyrir okkur eins og hann ætti við lífið að leysa. Svo í næsta húsi voru tónleikar með svona fiftís rokk & roll bandi sem var alveg helvíti skemmtilegt!!
Daginn eftir keyrðum við til Rye þar sem festivalið var haldið og þar hittum við alla hina: Hafþór, Halla, Rósu, Guggu, Thelmu, Alex og Allan. Það var ólýsanlegt joy að hitta þau, sjitt ég var bara í svona alsælu vímu!!! Við sáum fullt af góðri músík þar á meðal Stephen Malkmus and the Jicks sem voru frábærir!!! Og ég var heyra í þeim í fyrsta skiptið. Svo bloody Modest Mouse sem er nýjasta uppáhaldsbandið mitttt!!!! Þeir voru geggjaðir nema það var söngvarinn Ísak var eitthvað fúll á brún, hafði samt ekki áhrif á tónlistina. Um kveldið héldum við partý í íbúðinni okkar Guggu, Sveins, Danna, Jo og Sophie. Já ég gleymdi að segja það, við fengum svona íbúð með eldhúsi, sturtu og alles!!!!! Það var megastuð og megaflippppp eins og vanalega sem entist fram á sólskerta morguninn. Jebbb, svo var fullt af öðrum böndum sem við sáum á laugardeginum og sunnudeginum, bönd eins og: Le Tigra (kolgeggjaðar gellur sem rokkkka feitt, unerground girl band sem spila svona flippað techno rokk með öskur harmóníum, frábært!!), Tindersticks sem voru fooookkkkkinnnnn meggjaðir, þeir voru klappaðir upp tvisvar ef ekki þrisvar!!!!!! Sonic youth sem ég náði ekki alveg að digga, kannski út af því að ég var alveg aftast (soldið heimskulegt) en Hafþór fór alveg fremst og hann var að flippa út af ánægju!! Vincent Gallo sökkaði feitt. Love sem ég hafði aldrei heyrt um áður voru frábærir!! The Notwist voru helvíti fínir. Lightning Bolt enduðu hátíðina í horninu á staðnum Á GÓLFINU!!!! ekki uppá sviði!?!?! En þeir voru svo ógeðslega góðir, ég var alveg fremst flykkjandi fram og aftur í troðninginum. Ég var í hættu við að díhædreita því ég svitnaði svo ógeðslega mikið!!! Þetta voru bara tveir gaurar á trommum og bassa (ég keypti diskinn þeirra seinna meir en ég varð fyrir miklum vonbrigðum með diskinn því hann er ekki næstum því eins góður og ef þeir spila live :(
Hurru ég verð að drulla mér út. Framhald í kvöld eða á morgun
luv & pís

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home